14.05.2012 23:24

Hret

Það var frískandi að vera niður við smábátahöfn í kvöld.


18.04.2012 20:40

Skreytingar á Frönskum dögum

Hann Ragnar Þorvaldsson sendi þessar myndir til birtingar og enn fleiri eru í albúmi. Hann tók þessar myndir á Frönskum dögum 2011. Njótið.



Þessi er úr Rauða hverfinu.

16.04.2012 07:33

Ferming

Þessi unglingar fermdust í Fáskrúðsfjarðarkirkju 5. apríl.



Fermingarbörnin ásamt prestinum að lokinni athöfninni.
Frá vinstri: Alfreð Steinn Gestsson, Brynja Rún Steinþórsdóttir, Elísabet Ýr Gunnarsdóttir, 
sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Ísak Helgi Karvelsson, Garðar Logi Ólafsson, 
Gígja Guðnadóttir og Selma Rut Ómarsdóttir.

15.04.2012 20:34

Lóan er komin!

Við fuglaskoðun í dag sáust nokkrar lóur á leirunni. Einnig mátti sjá þar tildrur, stóra hópa af stelkum, sendlingum, tjaldi, hettumáf og öðrum máffuglum. Einnig sáust grágæsir og stokkendur. Alltaf gaman að fygjast með fuglunum á vorin. 


05.04.2012 07:25

Blíða.

Veðrið hefur leikið við okkur í ansi oft þennan vetur, í gær var það svona.



Fáskrúðsfjörður 4. apríl 2012.

17.03.2012 20:03

Endurbygging Franska spítalans

Það er gaman að fylgjast með þeirri vinnu sem er farin af stað í endurbyggingu Franska spítalans. Götumyndin á eftir að verða afskaplega falleg þegar þessu stóra verkefni verður lokið.










  • 1
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 270
Gestir í gær: 88
Samtals flettingar: 974567
Samtals gestir: 255878
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:24:42