Gestabók
15.4.2012 kl. 20:47
Hvenær var Friðrik á Fáskrúðsfirði?
Jónína
7.4.2012 kl. 12:42
SKÓSMIÐIR
Mig vantar að vita um Friðrik Otto Einarsson skósmið og fjölskyldu hans á Fáskrúðsfirði
kv. Steinsen
ásthildur G. Steinsen
2.1.2012 kl. 20:31
Jóla og áramótakveðjur.
Gleðilegt nýtt ár, mjög gaman er að skoða hvað koma margar fallegar myndir bara snild.:)
Hafdís Jónsdóttir
15.4.2011 kl. 20:35
Um páskana.
Á páskunum eru gulir ungar,
sem eru ofan á páskaeggjum.
Þeir likta eins og hrútspungar,
eins og slefandi steggjum.(mönnum)
Á austurlandi er mikið að gera,
að selja páskaeggjinn.
Frúrnar hafa mikið að skera,
til að gleðja stegginn.
Krakkarnir hlakka mikið til,
að borða súkulaði.
Springur bumban hérum bil,
það verður ekki mikill skaði.
29.12.2010 kl. 20:14
Gleðileg jól!
takk kærlega fyrir mig, svo dásamlegir myndir..sérstaklega af krökkunum mínum ;) kv. Rima
Rima
26.10.2010 kl. 21:35
flott síða og gaman að skoða Kv jói þ
Jóhann þórlindsson
24.9.2010 kl. 7:59
Komið sæl/sælir ,gaman að skoða myndirnar á þessari síðu kannast við nokkur andlit ,á eftir að koma oft hér við Kveðja Gunnar Jóh.
Gunnar Jóh
23.9.2010 kl. 2:14
French Hospital
Hello,
Can someone tell me whats happend to the French Hospital? Where is it moved to and what is the new destination?
Jan Decreton
27.7.2010 kl. 19:46
Flott síða og gaman að skoða, meira af þessu, takk fyrir. Kv frá Hólmavík.
Jón Halldórsson
25.7.2010 kl. 20:36
Var renna yfir siðuna,og skoða myndir frá helginni gaman að sjá hvað margir sóttu heim,þessa helgi og tóku þátt i gleðinni,með heima fólki i góðu veðri.kveðja Guðmundur á Búðum.
Guðmundur Sören
18.1.2010 kl. 10:37
Kveðja
Heil og sæl.
Hjartanlega til hamingju með þessa flottu síðu. Gaman að skoða myndirnar sem margar eru eins og listaverk og lesa allar þessar góðu upplýsingar sem eru á síðunni.
Takk fyrir mig.
Bestu kveðjur.
Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir
16.1.2010 kl. 0:38
Kveðja heim í fjörðinn fagra Fáskrúðsfjörð
Gaman að skoða frábærar myndir, eða listaverk sem mynd eru ,takk fyrir,kv Rúnar frá Búðum
Rúnar Kristinsson
10.1.2010 kl. 22:03
Það hefur greinilega verið mikið stuð á Hjónaballinu. Takk fyrir að fá að skoða myndirnar.
Svava Þórey
9.1.2010 kl. 12:35
fallegar myndir hlakka til að sjá fjörðin fagra styttist í það aðeins nokkrir dagar en takk fyrir frábærar myndir gaman að skoða þær
Guðrún Kristinsdóttir
28.12.2009 kl. 21:32
kveðja heim
sendi innilegar jóla og áramóta kveðjur heim í fjörðinn fagra, og til þín Jónína, með sérstökum þökkum fyrir yndislega síðu, var að enda við að hlusta á lag eftir Dadda, Komin heim, alltaf fara sömu tilfinningar um mig, enn og aftur, takk fyrir, þú átt heiður skilið, kveðja, Gunnþóra Skafta
Gunnþóra Skaftadóttir
26.12.2009 kl. 22:53
Jólakveðja
Innilegar jóla-og áramóta kveðjur til þín og fjölskyldunnar,kærar þakkir fyrir sendinguna um góðar minningar frá liðnu sumri,þökk fyrir að halda síðunni opinni...Kær kveðja Bryndís og Gunnar Jósep
Bryndís G
13.11.2009 kl. 13:25
Þessi síða hjálpar manni mikið þegar heimþráin skellur fast á mann
kv HP
Herdís Pétursdóttir
18.10.2009 kl. 16:26
yndisleg síða af dásamlegum firði
takk fyrir frábærar myndir og flotta síðu og að fá tækifæri til að skoða fallegasta staðinn æskustöðvarnar sem maður fær aldrei nóg af að skoða kveðja Guðrún Kristinsd
Guðrún Kristinsdóttir
29.8.2009 kl. 23:01
Þið eruð frábærar......
....að nenna að halda úti þessari síðu. Það er ómetanlegt að geta fylgst svona með firðinum fagra !
Kveðja frá Seyðisfirði
Jóna Björg
25.7.2009 kl. 22:34
Kveðja
Kæru sveitungar vona að þið hafið frábæra Franska daga og hafið góðar stundir um ókomna tíð. KV/ESE
Einar S. Einarsson
21.7.2009 kl. 23:46
Fáskrúðsfjörður flottastur allra fjarða
Frábært framtak að halda þessari líflegu síðu uppi það er mikil vinna. Maður finnur fyrir því hvar ræturnar liggja við að skoða efnið hér.
Einar S. Einarsson
1.7.2009 kl. 12:06
Fegurð Fáskrúðsfjarðar
Ég þakka fyrir þessa síðu, kíki alltaf reglulega á hana, og hlusta á myndbandið,fegurð Fáskrúðsfjarðar eftir Dadda,alltaf jafn yndislegt, kveðja heim
Gunnþóra Skaftadóttir
11.5.2009 kl. 20:38
flott síða
var að skoða þessar svaðalegu flottu myndir hér á síðuni þá langar mann nú bara austur
Kjartan Þór
27.4.2009 kl. 22:52
Skemmtileg síða
Rakst inná þessa skemmtilegu síður ykkar, frábært framtak að halda henni út.. hingað mun ég kíkja oftar. Bestu kveðjur í fjörðinn fagra.
Magnús Guðjónsson
9.4.2009 kl. 13:33
KVEÐJA
þreytist aldrei á að horfa á og hlusta á myndbandi,, fegurð Fáskrúðsfjarðar, hafið bestu þakkir fyrir að halda þessari síðu opinni, og sendi páskakveðjur heim, Gunnþóra Skafta
Gunnþóra Skaftadóttir
31.3.2009 kl. 9:19
Fyrir Fáskrúðsfirðinga
sæl verið þið. Ég hef verið að vinna að því að gera skemmtilega mynd af bænum okkar og langaði til að sýna sem flestum sem búa á Fásk
[url]http://elisbergur.bravehost.com/Fask28/Template.htm[/url]
Elís Bergur Sigurbjörnsson
14.3.2009 kl. 18:49
Mjög fallegt.. Annð mig vanta íbúð á Frönskum dögum
endilega látið mig vita, meilið mitt er eyglogunn@isl.is
Eygló Gunnþórsd
11.3.2009 kl. 22:47
þessi siða er einstok
Þu fjollum girti fjorður
og falleg sveitin min
myndirnar ykkar skoða eg og fjolskyldan oft hverja viku,þessi vinna ykkar er storkostleg.
takk fyrir mig.Kveðja til allra.þrostur Julla
þrostur Juliusson
18.2.2009 kl. 0:15
Heilir og sælir Frábær síða og takk fyrir mig.
Þóroddur Sævar Guðlaugsson
10.2.2009 kl. 12:54
Rosa langar manni heim
Þegar maður skoðar þessar myndir. Frábær síða. Takk fyrir mig
Eygló Gunnþórsd
2.2.2009 kl. 19:09
geggjuð síða
Heilir og sælir góðir sveitungar frábær síða og flottar myndir maður fer langt aftur í tíman og lifir upp gömlu góðu dagana.
Gangi ykkur allt í haginn kv Guðrún frá Borgarhlíð
Guðrún Kristinsd.
3.11.2008 kl. 22:55
Ekki fækka
Mér hefur borist til eyrna að segja eigi upp mönnum í áhaldahúsinu og selja húsið,hefilin.og 1 gröfu .Þessir menn sem starfa þarna hafa reynst bæjarbúum vel og hvergi er á landinu betri snjómokstur en hér á fásk.Vonandi verða mótmæli út af þessu og látum ekki fara endanlega með okkur í svefninn.
Margrét Andrésdóttir
17.10.2008 kl. 8:36
Strönd og hljómsveitir
Ég heiti Þröstur Ingólfur Víðisson og var svo heppinn að fá að búa á Fáskrúðsfirði í nokkur ár. Þetta hefur frá 1966 til 1969 eða 1970. Ég bjó ásamt foreldrum mínum í frægu húsi sem nú er löngu horfið, það hét Strönd og var þar sem bræðslan er núna. Þarna átti ég frábæran tíma og eignaðist marga góða vini. Þegar fjölskyldan flutti svo til Reykjavíkur slitnuðu þó böndin við flesta þeirra. Meðal þess sem ég braskaði í á Fáskrúðsfirði var að spila í hljómsveit með Tóta Óðins, Haffa, Stebba Garðars, Kjartani Ólafs og kannski fleirum. Ég á því miður engar myndir frá þessum árum en langar mikið til þess. Væri ég afar þakklátur, ef einhver lumar á myndum frá þessum tíma, ég tala nú ekki um af hljómsveitinn, að fá að heyra frá honum/henni. Nú eða bara heyra í gömlu vinunum án mynda! Netfangið mitt er vidisson@gmail.com
Með bestu kveðjum
Þröstur Ingólfur Víðisson
Þröstur Ingólfur Víðisson
1.10.2008 kl. 16:33
Takk fyrir
hæ hæ kíki alltaf reglulega hingað inn til að sjá fréttir úr firðinum. Finnst alltaf jafn notalegt að sjá síðuna hans Gabríels ennþá undir Fáskrúðsfjarðarbörn.
Bið að heilsa öllum. Guðrún og Gabríel
Guðrún K. Valgeirsd
29.9.2008 kl. 11:33
Glaðheimar
flott nafn á aðstöðu eldri borgara og búið að gera húsnæðið glæsilegt :)
Jóna Björg
11.9.2008 kl. 18:06
mjog gott hjs ykkur
ORN RUNARSSON
11.9.2008 kl. 18:05
o
15.8.2008 kl. 23:25
Rosalega er gaman að skoða þessa síðu.Mér finnst æðislegt að skoða myndirnar frá Frönsku dögunum.Og andlits myndir Sölva er náttúrulega bara tær snilld.Bestu kveðjur í fallegasta fjörðinn.
Hafdís Kobba
15.8.2008 kl. 12:01
Frábær síða :-)
Langar bara að þakka fyrir þessa frábæru síðu hér. Kíki oft á hana þó að ég hafi lítið gert af því að kvitta. Verð að viðurkenna að ég fæ alltaf heimþrá þegar ég kíki hér inn.
Kærar þakkir fyrir mig.
Kveðja frá suðurnesjum. Dagbjört
Dagbjört Þórunn
9.8.2008 kl. 18:18
Frábærar myndir og góð síða hjá þér.Við systkynin mætum á franska daga næsta ár. Gaman að fylgjast með fréttum frá Fáskrúðsf.
Kveðja Ósk frá Laufási
Ósk Óskarsdóttir
6.8.2008 kl. 14:29
Frábært.......
að sjá hvað þið hafið verið duglegar að mynda á Frönsku dögunum :)
Fullt af fólki sem ég þekki ekki en er búin að skoða alla súpuna og hafði gaman af :)
Takk fyrir mig !
Jóna Björg
6.8.2008 kl. 10:46
Takk
Takk fyrir finar myndir og myndbönd mjög gaman ad heyra ny lög um fjördinn fint lag hja Doa fraenda minum passar vel vid myndirnar ykkar.
Ingo
Ingolfur Arnarson
31.7.2008 kl. 22:27
hæ hæ
Takk fyrir allar myndirnar af frönsku alltaf gaman að skoða og sjá maður er alltaf með ykkur í anda hehe
Kristín Sesselja systir Sölva
Kristín Sesselja
28.7.2008 kl. 11:26
Takk
Takk kærlega fyrir allar myndirnar frá Frönskum dögum :)
kv. Heiðrún Ósk
Heiðrún Ósk
27.7.2008 kl. 19:23
Það er búið að vera mjög skemmtilegt að fylgjast með myndunum ykkur um helgina franskra daga.
Það eru margir sem ég þekki ekki, en gaman að sjá þá sem maður hefur ekki hitt eða séð lengi.
Hafið bestu þakkir fyrir að leyfa okkur eftirlegukindunum að fylgjast með ykkur.
Kalli Pálma
17.7.2008 kl. 22:27
Spor
Vildi bara skilja eftir mig spor.
Guðmundur St.
9.7.2008 kl. 19:27
Island fyrir mig ;)
Hae vil bara takka fyrir ykkar frábaeru sídu, tetta eru nánast einu teingslin sem ég hef vid Ísland. Hef búid erlendis sídan 1985, Takk! Jóhanna "fraenaka" og mín gamla bekkjarsystir Jónina, Drifa.
Drífa Hardardóttir Andersson
6.7.2008 kl. 0:06
You are the sunshine!
We love you :))
Pabbi og mamma
2.7.2008 kl. 23:15
Stelpur,,jess,, þið eruð frábærar ,að leyfa okkur heimalingum og brottfluttum að njóta þessarar síðu áfram.Takk fyrir mig.
Bryndís G.
16.6.2008 kl. 17:51
Alltaf gaman að skoða
Það er alltaf gaman að skoða fallegar myndir. Kíki hingað daglega.
Guðmundur St.
16.6.2008 kl. 11:24
takk takk
Alltaf jafn gaman að skoða þessar frábæru myndir af firðinum mínum fagra maður dettur ....ár aftur í tímann :-) kveðja til þeirra fáu sem kanske enn muna eftir mér.
Valborg Stjána (Móbergi)
Valborg H Kristjánsdóttir
24.5.2008 kl. 17:44
Bra bilder
Hej
Bjarni Ingolfsson här. Uppväxt på Fáskrúðsfjörð tills 9år. Bor i Malmö, Sverige. Roligt att hitta bilder på sin gamla hemstad. Hoppas ni kan läsa svenska, jag är inte så bra på att skriva isländska.
Hejdå.
Bjarni Ingolfsson
10.5.2008 kl. 13:18
Flott síða og flottar myndir. gaman að rifja upp gamlar minningar en þennan dag árið 1970 fæddist ég í tunguhlíð. kv Gróa Dunnadóttir
Gróa
9.5.2008 kl. 21:18
Flott
alltaf jafn gaman að kíkja heim þó bara sé í gegn um tölvufjarskipti flott síða kveðja
Hafdis Jónsdóttir
6.4.2008 kl. 15:07
Glæsileg síða. Gaman að koma hérna og skoða :-)
Berglind Richardsdóttir
5.3.2008 kl. 1:56
FLOTT SIDA STELPUR
10.2.2008 kl. 3:11
Flott síða
Stelpur. þetta er ein flottasta síðan á netinu. Gaman að skoða fallegar myndir af firðinum fagra.
Ævar Agnarsson
8.2.2008 kl. 10:49
Flott síða
flott síða,gaman að skoða myndirnar,enda er maður ættaður þaðan(Vestmann)
Bára&Óli(459)
2.1.2008 kl. 11:41
Óska ykkur öllum gleðilegs árs,og þakka vel fyrir að getað kíkt inn á þessa síðu, sem er gott þegar maður er i rólegheitum, svo ég tali nú ekki um myndbandið og hlusta á lögin, bið að heilsa heim, kveðja, Gunnþóra,
Gunnþóra
21.12.2007 kl. 14:53
Jolakvedja
Vid hjonin oskum öllum Faskrudsfirdingum gledilegra jola og ad allt gangi mönnum og byggd i haginn a nyja arinu.
Ingolfur og Thorhildur
Ingolfur Arnarson
13.12.2007 kl. 22:40
Kröftugar konur
Kæru J&J þetta er frábært framtak hjá ykkur. Það var tilfinningaþrungið og tregablandið að skoða síðuna ykkar. Kærar þakkir fyrir að gera okkur brottfluttu kleift að nálgast ykkur á þennan hátt.Þið eigið heiður skilið.
Margrét Albertsdóttir
5.12.2007 kl. 22:53
Frábært framtak
Jónína og Jóhanna, þið eigið heiður skilið fyrir þessa síðu, hún er aldeilis frábær :-)
kv.Eygló
Eygló Ægis
21.11.2007 kl. 12:39
Fallegt
Sendi kvedju heim og tad eru svo dåsamlega fallegar myndir her inni af fyrdinum gamla,og lagid svo fallegt sem spilast med..Takk fyrir goda sidu sem gefur goda tilfinningu i hjartad.
Johanna
19.11.2007 kl. 20:41
Myndbönd
Takk fyrir ad thid takid ykkur tima i thessa sidu sem er frabaer og byggd og folki til soma. madur situr stundum fyrir framan tölvuna (med raudvinsglas i hendi) og rifjar upp lidna atburdi, gledi og sorgarstundir,man tha oftast eftir hvad var gaman ad vera til a Faskrudsfirdi. Myndirnar ykkar vekja söknud minn eftir Faskrudsfirdi og mannlifinu thar.
Enn einu sinni TAKK...
Ingolfur Arnarson
Ingolfur Arnarson
6.11.2007 kl. 9:15
Mikið er gaman að skoða síðuna og hlusta á þessi fínu lög, takk kærlega fyrir, kveðja heim, Gunnþóra.
Gunnþóra
5.11.2007 kl. 17:14
Myndbandið "Fáskrúðsfjörður í október" er hreint út sagt frábært ,lagið sérlega vel valið, meira af þessu.
Ægir Kr.
10.10.2007 kl. 17:55
heimþrá
Mikið langar manni alltaf heim þegar maður skoðar þessar myndir hérna inná þessari síðu :)
Ásta Kristín G Michelsen
9.10.2007 kl. 14:18
Frábær síða ;o)
Ekkert smá gaman að skoða þessa síðu reglulega ;) Hef líka hvergi annars staðar búið jafn lengi ;)
Sandra Birnudóttir
8.10.2007 kl. 21:27
Kvitt kvitt
Við hjónaleysin vorum að skoða myndir af firðinum sem er nú í smá uppáhaldi hjá okkur og auðvitað er þessi síða í miklu uppáhaldi líka :)
Takk fyrir að deila þessum frábæru myndum með okkur hinum.
Kveðja úr Skagafirðinum. Jakob og Guðbjörg
Guðbjörg og Jakob
5.10.2007 kl. 4:50
gott mál meira af þessu
þórður hansa
10.8.2007 kl. 13:55
Flottar myndir af Ferðini okkar :)
Flott síða og svaka flottar myndir úr hestaferðini...
hvenar koma hinar myndinar inn?
Heiða
31.7.2007 kl. 17:12
Takk takk
Takk kærlega fyrir frábæra Franska daga. Kveðja frá Beverlí.
Heiðrún Ósk, Einar Vilhelm og Auðunn Ölver
31.7.2007 kl. 15:16
Takk kærlega!
Þið eigið mikinn heiður skilið fyrir allar myndirnar frá Frönsku dögunum. Eins og einhver sagði ef maður er ekki viss um hverjir eru í bænum þá er bara að kíkja á myndirnar - hér á síðunni.
Allir sem komu að Frönskum dögum þakka ykkur fyrir góða helgi.
Líneik Anna
Líneik Anna
31.7.2007 kl. 12:42
Frábært!!!
Þið eruð ekkert smá duglegar með myndavélarnar! Þið eigið hrós skilið fyrir alla þessa vinnu.
Kveðja frá Reyðó
Sunna Smára
30.7.2007 kl. 20:13
Kæra þakkir fyrir frábæra Franska daga.
Svava Þórey Fáskrúðsfirðingur
29.7.2007 kl. 16:06
Takk fyrir frábæra skemmtun um helginan ..
Þið kunnið sko að skemmta ykkur og öðrum ..
Þúsund þakkir
Hrafnhildur
29.7.2007 kl. 10:45
Takk fyrir allar fínu myndirnar á frönskum dögum, hef notið þess að fylgjast með hvað um var að vera í bænum,bestu kveðjur, Gunnþóra
Gunnþóra
24.7.2007 kl. 23:47
Var að enda við að hlusta á lagið eftir Dadda og horfa á myndirnar að heiman, alltaf jafn yndislegt, kveðja ,Gunnþóra
Gunnþóra
23.7.2007 kl. 0:02
datt inn á þessa síðu likar vel. rifjar upp gamla tíma.vestfirsk kv. gústa
Gústa Þórólfs
12.6.2007 kl. 7:48
Góðan daginn, alltaf jafn notalegt að setjast niður og skoða síðuna af firðinum okkar fagra, og hlusta á lagið eftir Dadda, Fegurð Fáskrúðasjarðar, er nú að fara í vinnuna, en er þó búin að hlusta á lagið og skoða myndirnar, ég vil bara enn og aftur þakka fyrir þetta góða framlag ykkar með síðuna, með kærri kveðju heim, Gunnþóra.
Gunnþóra
18.5.2007 kl. 2:23
Fjörðurinn geymir spor bernsku minnar.
Komið þið öll blessuð og sæl sveitungar góðir! Við eigum eitt sameiginlegt, það er að hafa alist upp á milli tignarlegra fjalla í fögrum firði. Ég verð bæði hreykinn og stoltur af uppruna mínum þegar ég skoða ljósmyndir á vefnum ykkar. Jóhanna Hauksdóttir hefur næmt auga fyrir árstíðarbundinni náttúrinni og eru myndirnar hennar afskaplega vel úthugsaðar. Jónína mín, við sem erum brottflutt að heiman og höldum tryggð við æskustöðvar okkar, erum lánsöm að eiga ykkur að sem halda þessum vef í uppi. Myndirnar sem Böggi Baldurs tók um borð í Báruni eru ómetanlegar. Það væri mjög gaman að fá fleiri myndir frá svipuðum tímum sem þær voru teknar. Eins og þið flest vitið er alltaf gaman að skoða myndir frá því að okkar nánustu, ættingjar og vinir voru ungir. Enda er vefur sem þessi sameiningar-tákn okkar allra sem unnum Fáskrúðsfirði.
Fjallahringur fagur
fjöll að innstu sveit,
ekki leið sá dagur
er ég fegurð þeirra leit.
Í hundruð ár þau hafa
staðið reyst við sæ,
fylgst með ömmu og afa
byggja upp lítinn bæ.
Kærar kveðjur, Kalli Pálma.
Karl Emil Pálmason
15.5.2007 kl. 23:30
Heimahagar
Flott síða frá firðinum fagra.Kom í heimsókn í mars síðastliðin þá var nú Spánarveður vona að það verði í sumar líka,ég er nýbúin að halda uppá 50 ára afmælið og auðvitað var það með Austfiskum tónlistar mönnum ómissandi ég sakna alltaf Austfjarðanna og mannlífsins þar. Þess vegna er mjög gaman að geta skoðað síðu sem þessa. Kveðja til allra sem ég þekki takk fyrir kv. Hafdís
Hafdís Jónsdóttir
13.5.2007 kl. 10:58
Flottur gagnvirkur vefur
Það vafðist nú ekki fyrir henni Jónínu Guðrúnu að þræða mig að frænku minni henni Hrafnhildi Unu sem er hér eftir Hrafnhildur barnabarnið hans "Jóa bróður" (hennar ömmu minnar), sæl frænka. Geri aðrir betur, rétt kona á réttum stað!! Ef hér væri líka linkur sem héti t.d. ættfræði/saga fólksins, þar sem fólk eins og ég gæti fræðst þó ekki væri nema gróflega um ættir og líf fólks og þá ekki síst "líf venjulegs fólks", sem ratar annars ekki á spjöld sögunnar, þá tel ég það ómetanlegt til lengri tíma litið. Klárlega er enn á meðal okkar eldra fólk sem ég held að mundi uppfræða okkur hin með mestu ánægju og gefa komandi kynslóð innsýn í það umhverfi sem við erum sprottin úr. Nei þetta er bara hugmynd og kanski er ég ein um að vera haldin fortíðarást og fortíðarforvitni!
Ég þakka vefstjórnendum fyrir afar góðan vef og óska þeim alls hins besta. Takk fyrir mig.
Helgadis
helgadis
10.5.2007 kl. 11:49
Helga Dís aftur
Póstfangið mitt kom ekki fram hér að neðan en það er helgadis@visir.is
Helga Dís
10.5.2007 kl. 11:44
Kæru frændur og frænkur!
Mikið hef ég hugsað til ykkar og eitt miklum tíma í að þræða allar slóðir hér í von um að finna þó ekki væri nema eina frænku eða frænda sem býr þarna austurfrá. Nú þegar ég er byrjuð að rölta seinni hluta lífsleiðar minnar án þess að hafa komið á heimaslóðir forfeðra minna hefur löngun mín til að vita e-r deili á ykkur aukist dag frá degi. Langamma mín var Guðlaug Halldórsdóttir og langafi Jón Níelsson og bjuggu þau í Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði. Ef þú kæri frændi eða frænka lest þetta og veist hvar ég get fundið e-n fróðleik um ættina þá þætti mér vænt um að þú sendir mér tölvupóst. Megi svo allir ykkar dagar vera góðir dagar. Ykkar frænka Helga Dís
helgadis
25.4.2007 kl. 22:06
Vá, frábær síða!!!
Ég á svo sannarlega eftir að skoða meira þessa síðu, .. frábærar myndir!!!!.
kv.Fjóla
(aðfluttur Fáskrúðsfirðingur,árgangur "70, bjó á Vattarnesi)
Fjóla Úlfarsdóttir
8.4.2007 kl. 9:54
Þetta er eitthvað sem maður verður að fylgjast með.
Datt inn á þessi síðu áðan á netrápi. Þetta eru magnaðar myndir hjá ykkur og gott framtak. Í fann skyndilega að mikið líf færðist í Fáskrúðfjarðartaugina mína og uppgötvaði við það staðsetningu hennar, hún er maganum! tengist sennilega eitthvað matnum hennar mömmu.
Farinn að borða.
Kv Eysteinn, Þórey, Trausti og magdýrið.
Eysteinn
5.4.2007 kl. 21:04
Frábær síða!!!!
Hæ hæ þetta er frábær síða hjá ykkur og glæsileg kynning á fásk.
kveðja frá okkur á Jaðri
Þórunn María og Hörður
15.3.2007 kl. 16:47
Vá.
Hæhæ flott síða og vá hvað ég sakna Fáskrúðsfjarðar, er ættuð þaðan og eyddi stundum sumrinu þar þegar ég var yngri. Sé sko ekki eftir því, þetta er tilvalinn bær til að alast upp í. :) endilega að halda áfram með síðuna :D
Sólveig Þórstína
20.1.2007 kl. 18:08
Gaman að skoða myndinrar frá þorramatnum á Uppsölum en ég er líka að bíða eftir myndum frá hjónaballin svona er maður orðin langar að sjá allt sem er minnst á kv.
Sigurlaug Ottósdósdóttir
8.1.2007 kl. 23:14
Frábær síða og fallegar myndir enda myndefnið frábært. Meiriháttar gott framtak, takk fyrir.
Elín Agnes Kristínardóttir
8.1.2007 kl. 22:43
Bið bara að heilsa
það eru í dag 14 ár síðan ég flutti frá fáskrúðsfirði, en ég hef aldrei kallað mig annað en fáskrúðsfirðing og þessi síða hjálpar þegar maður vill komast á nostalgiu-flipp.Sakna staðarins og flestu sem honum tengist. Takk fyrir gott framtak.
Arnþór Benediktsson
7.1.2007 kl. 13:38
Takk fyrir
Frábær síða!Skoða hana daglega.Bestu kveðjur og gleðilegt nýtt ár.
Brynja Lúðvíksdóttir
6.1.2007 kl. 18:46
Gleðilegt nýtt ár...
Gleðilegt nýtt ár allir Fáskrúðsfirðingar nær og fjær.
Myndböndin eru yndisleg. Ég fékk sting í hjartað mig langar svo austur eftir að hafa skoðað þau.
Þið eruð náttúrulega bara snillingar stelpur sem haldið þessari síðu uppi.
Takk kærlega fyrir mig og kveðjur í fjörðinn minn fagra ;)
Binna
6.1.2007 kl. 17:39
Það verður öruglega gaman á hjónaballinu hjá okkur eins og vanalega.kv Oddrún
Oddrún
1.1.2007 kl. 18:32
Gleðilegt nýtt ár
Skemmtileg síða. Sérstaklega fannst mér þó gaman að sjá mynböndin frá firðinum ;)
Þorvaldur Davíð
1.1.2007 kl. 15:05
Gleðilegt ár
Hæ stelpur! Gleðilegt nýtt ár, Þetta er virkilega skemmtileg síða, haldið áfram, :) Takk fyrir mig.
Sigurbjörg
1.1.2007 kl. 14:30
Gaman
Halló og gleðilegt nýtt ár. Þetta var góð sýning á myndum og gaman að skoða. Ekki spillir að hlusta á lag frá Dadda í Mánagarði, hann stendur alltaf fyrir góðum lögum. Þakka fyrir mig. Nýjárskveðja Gréta Frissa.
Gréta Friðriksdóttir
28.12.2006 kl. 23:17
Jólaball í anda gömludaganna
Sæl Jóhanna gaman að skoða síðuna þína og myndirnar eru alveg frábærar.
Mig langar til að segja þér frá jólaballi sem haldið var í anda gömludaganna á Fáskó hér í höfuðborginni í dag, nánar tiltekið í Félagsheimilinu á Seltjarnanesi sem er ekki ólíkt og Skrúður.
Þarna komu saman brottfluttir Fákrúðsfirðingar, eitthvað á annað hundrað manns, Óðinn G, Jón Ólafur og Þórólfur frá Reykholti þöndu nikkurar og Begga stjórnaði söngnum. Á eftir var boðið upp á rjómatertur,kleinur, flatbrauð með hangikjöti, smákökur og svo náttúrulega voru pottlok í boði (hvít kaka með brúnu og hvítu glassúri), þessu var svo rennt niður með alvöru súkkulæði. Að sjálfsögðu komu svo jólasveinar í heimsókn. Það er alltaf gaman að rifja upp gamla tíma og hitta skemmtilegt fólk!
Kveðja
Stebba
Stefanía Finnbogad.
28.12.2006 kl. 22:42
Skemmtileg síða sem vekur
upp minningar...hér er gamann að kíkja við og gleyma sér um stund... jólaball í Skrúð vá öll andlitin sem þarna eru á ferð... minningar frá því í denn þegar ég trítlaði sjálf kringum tréð .. Flott hjá ykkur kv.
Sigga
Sigga Sig
27.12.2006 kl. 0:32
Sæl Jóhanna og Gleðileg jól til þín og þinna, takk kærlega fyrir þessar fallegu myndir, ég lít við hjá þér má segja daglega,það liggur við að mig langi bara heim, en takk fyrir og njótið það sem eftir lifir af hátíðinni, jólakveðja, Gunnþóra
Gunnþóra
26.12.2006 kl. 23:09
Flottar myndir
Flottar myndir hjá þér.
Kveðja
Eiki KR
Eiki KR
14.12.2006 kl. 13:27
belssaður hvað segiur þa bærinn þa gott i dag er i soklanum og sovna en þu hvað er bærinn að gera nuna hvað festu i sokinn i nott eg feki ekki neitt sok og eg kika allft a þig eg heyri senina i gad eg er bara herss en þu ?? þetta er töff bæri
brynjara
10.12.2006 kl. 20:19
Flott sida og finar myndir!!
Agnar Eide Agnarsson
3.12.2006 kl. 9:44
hæ!rakst a tessa sidu gegnum adra,flottar myndir,flott ad geta fylgst med firdinum fagra :) kvedja ur DK
Hanna Gudbjorg
28.11.2006 kl. 16:49
kveðja
Sæl Jóhanna, ég var að senda póst til Jónínu, en held að það hafi ekki tekist, vildi bara þakka ykkur fyrir síðuna um fjörðinn okkar, myndbandið ,unnið af Jónínu stóð, það bara er yndislegt og lagið eftir Dadda spilað með, ég veit ekki hvað oft ég er búin að skoða þetta, bara frábært hjá ykkur, vil ég bara senda góða kveðju heim í fjörðinn fagra, og gangi ykkur vel,Gunnþóra.
Gunnþóra
27.11.2006 kl. 17:08
Þetta er frábært framtak hjá ykkur,vonandi gengur síðan vel
M
25.11.2006 kl. 21:14
Takk fyrir mig.
Takk fyrir mig. Frábær heimasíða með fallegu myndum og fl.
Kveðja María
María Sigurbjörnsdóttir
24.11.2006 kl. 10:38
Heima best
Takk fyrir goda sidu og myndirnar vekja oneitanlega heimthra hja okkur sem buum fjarri FIRDINUM gott framtak!!!
Ingolfur Arnarson
20.11.2006 kl. 7:03
Alveg frábær síða hjá ykkur,og vel unnin,gaman að kíkja inn á hana.kveðja Eygló
Eygló Sörensen
13.11.2006 kl. 21:25
frábært hjá ykkur !!!!!
Takk fyrir þetta framtak ykkar.
Frábært fyrir ming gamlan fáskruðsfirðing að geta fylgst með úr fjarðlægð.
Kveðja.
Valborg Stjána
valborg H kristjans
11.11.2006 kl. 20:53
Flott síða!
Frábær vefur syss - gott þér leiðist ekki ! ;)
Myndirnar eru meiriháttar, gaman að geta fylgst með lífinu heima.
Siggi Jörgen
siggi jörgen
11.11.2006 kl. 17:50
Frábært framtak
Þessi síða er frábært framtak hjá ykkur og ekki skemma myndirnar síðuna. Takk fyrir og leggjumst öll á eitt að kynna fjörðin fagra. Kv Eiríkur
Eiríkur Ólafsson
8.11.2006 kl. 0:12
Vel unnið Vefstjórar! ! !
Björg Traustadóttir
3.11.2006 kl. 18:23
Viljið þið ekki setja mig í listann hjá hinum Fáskrúðsfjarðarbörnunum?
En annars er þetta flott síða og ekki eru myndirnar síðri.
Besti bærinn!
Bjartmar Egill
27.10.2006 kl. 22:01
Frábær síða og mjög flottar myndir, til hamingju Kveðja Jóna
Jóna Björg Jónsdóttir
18.10.2006 kl. 15:10
Ekkert smá flott sída!!
Ég verd nú ad segja ad ég er svolítid sein í tví..var ad komast ad tví ad thessi sída vaeri til fyrir nokkrum dogum! En frábaert ad geta fylgst med heimabaenum útí heimi og sýnt vinunum myndir! Sem their halda ekki vatni yfir-fegurd haustsins á ég thá vid. Frábaert framtak!
Eydís Ósk Heimisdóttir
9.10.2006 kl. 11:27
Flottar gamlar myndir.
Frábært að skoða þessar gömlu myndir og sjá sum húsin sem eru farin :)
Binna
7.10.2006 kl. 20:24
Fáskrúðsfirðingar
Halló, ein brottflutt að skoða. Til hamingju með síðuna. Flottar myndir. Mun örugglega skoða oft. Kveðja úr Strandasýslu, Ragna (dóttir Dísu og Lilla popp)
Ragna
6.10.2006 kl. 0:11
Rosalega gaman að skoða gömlu myndirnar. Kær kveðja að vestan.
Tóta
20.9.2006 kl. 14:42
Frábært!
Mikið er gaman að geta fylgst með hér.
Til hamingju með síðuna.
KV Svava
Svava þórey Einarsdóttir
20.9.2006 kl. 14:30
Flott sída
Haehae thetta er mjog skemmtilegt sída.. bara áfram med hana;)
Hafthor Eide
16.9.2006 kl. 19:36
Góð síða hjá ykkur til hamngju með þetta.
kv Eddi hja G.ó vertökum
eðvarð Þór
4.9.2006 kl. 1:11
Takk fyrir
Þakka kærlega fyrir. Ég á örugglega eftir að koma við hér mjög fljótlega, og skoða eitthvað meira af þessum stórkostlegu myndum.
Júlía Þorsteinsdóttir
28.8.2006 kl. 9:41
frábær vefur
hæ hæ
mikið er gaman að geta fylgst með firðinum fagra við höfðum það frábært á frönskudögunum og munum sannarlega koma fljótt aftur kær kveðja Krisín Sesselja (dóttir Guðnýju sölva) og Guðmundur Egill
Kristín Sesselja Richardsdóttir
21.8.2006 kl. 22:41
Flottur vefur
Hæ.
Rosalega er gamana ð get skoðan þessa síðu hjá ykkur"
hún fer í Favorites hjá mér!
Kveðja Lena Huld
Lena
3.8.2006 kl. 17:22
Frábært
Voða gaman að geta loks fylgst með firðinum sínum úr fjarlægð. Umfjöllun um frönskudagana var einstaklega skemmtileg. Takk fyrir það allt.
Kv. frá Kaupmannahöfn
Ásþór Heimis
31.7.2006 kl. 21:53
Glæsilegt hjá ykkur stúlkur,mikið er gaman að skoða myndirnar bara eins og maður sé komin heim í fjörðin fagra á franska daga. Takk fyrir kv Sigurlaug.
Sigurlaug Ottósdóttir
28.7.2006 kl. 21:48
Til hamingju Fáskrúðsfjörður...
með þessa frábæru síðu. Mér finnst æðislegt að skoða myndirnar og sjá hvað um er að vera hjá (o)ykkur búðingunum. Við eyddum alveg heilmiklum tíma í að skoða og greina fyrstu myndirnar af frönsku dögunum núna í kvöld.
Sandra Eiðsdóttir
28.7.2006 kl. 16:33
Til hamingju!
Til hamingju með síðuna. Það er gaman að fylgjast með austurlandi og ekki spilla fallegar myndir fyrir.
Kveðja
Fjóla Þorsteins...brottfluttur Stöðfirðingur
Fjóla Þorsteinsdóttir
27.7.2006 kl. 11:13
Glæsilegt.
Gasalega flott hjá ykkur, er nú stolt af ykkar framtaki. :)
Sigurbjörg
15.7.2006 kl. 22:44
Gaman að skoða
hæhæ
Langaði bara að þekka fyrir að eitthver gerir síðu um fjörðinn flotta.
Kveðja
Ottó Einarsson
(barnabarn Ottós og Sveinu í skálholti)
Ottó Einarsson
12.7.2006 kl. 20:56
Flott síða hjá ykkur
elsa
7.7.2006 kl. 16:30
Vá!
Frábært framtak hjá ykkur :) Þessi síða verður sko fastur liður hjá mér á netrúntinum! :)
Tinna Hrönn
6.7.2006 kl. 15:30
Frábær síða hjá ykkur gott að geta kíkt við hér :) . Gott framtak
Helga Ósk
5.7.2006 kl. 22:30
Frábær síða, haldið þessu endilega áfram.
Jói Mikk
5.7.2006 kl. 21:10
Glæsilegt
Frábær hugmynd hjá ykkur, á eftir að verða fastagestur hér - má ég koma með hugmynd - hvernig væri að hafa linka á Fáskrúðsfjarðarbörn sem eiga síðu það er svo gaman að skoða margar af þeim síðum sem eru í gangi - nei bara svona hugmynd :)
Heiðrún Ósk
5.7.2006 kl. 7:01
Ég fæ mig seint fullsadda af myndum og fréttum úr heimabyggðinni :)) Frábært framtak, takk fyrir !
Helga Finnbogadóttir
4.7.2006 kl. 20:57
Flott framtak hjá ykkur! Hér mun ég kíkja við... vikulega á mínum bloggrúnti... kv. Gunna
Gunna
4.7.2006 kl. 16:41
Hæ Jóhanna mín!Til hamingju með nýju síðuna.Þetta er rosalega falleg mynd af sumarnóttinni.Kveðja Hafdís
Hafdís amma og Svenni afi
4.7.2006 kl. 16:27
Til hamingju með frábært framtak, tek undir allt sem Binna sagði. Kv. að vestan.
Tóta
4.7.2006 kl. 11:31
Frábært !
Þið eruð kjarnakonur sem ætlið að sinna þessari síðu. Frábært framtak hjá ykkur !
Ég fékk sting í hjartað þegar að Austubyggðarsíðan var lögð niður. Þá fannst mér bara einhvernveginn allt rofna frá firðinum mínum fagra. Það er ekki það sama að fara inn á Fjarðarbyggð. Þannig er það nú bara.
En ofboðslega er þetta falleg mynd af sumarnótt á Fáskrúðsfirði.
Til hamingju með nýju síðuna !!!!
Binna
4.7.2006 kl. 10:57
Flott mynd :)
Til hamingju Fáskrúðsfirðingar með síðuna ykkar. Mjög flott þessi mynd af sumar nótt 4 júlí ....
Jóhanna Guðný
