Færslur: 2012 Febrúar
15.02.2012 23:59
Norðurljós
Norðurljósin dreifðust um allan himinn í kvöld og glöddu þá sem voru úti við.

Skrifað af JGÓ
14.02.2012 10:12
Loðnuvertíðin
Líflegt er út við bræðslu þessa dagana. Hvert skipið á fætur öðru kemur inn með loðnu til löndunar auk þess sem verið er að skipa út mjöli. Í gærkvöldi var verið að landa úr Hoffellinu og Christian í Grjótinum beið eftir að komast undir.

Skrifað af JGÓ
11.02.2012 23:54
11.2 dagurinn 2012
11.2 dagurinn var haldinn hátíðlegur í dag. Slökkvistöðin og Björgunarsveitarhúsið var opið öllum og sýndu viðbragðsaðilar; þ.e. lögreglan, slökkviliðið, björgunarsveitin, Rauða kross deildin og slysavarnadeildin, tæki og tól. Boðið var upp á kaffi og vöfflur. Myndir komnar í albúm.


Skrifað af JGÓ
05.02.2012 22:53
Tunglið
Tunglið virkaði svo stórt þegar það kom upp yfir Búðaheiðina rétt fyrir kl. 17 í dag.

Skrifað af JGÓ
05.02.2012 01:41
Fallegt kvöld
Fallegt veður hefur verið í kvöld. Tunglbjart inn á milli og skýin á hraðferð í vindinum. Ekki skemmdi fyrir að norðurljósin létu sjá sig.

Skrifað af JGÓ
02.02.2012 12:55
Fallegur morgunn
Fáskrúðsfjörður skartaði sínu fegursta við sólarupprás í morgun.

Skrifað af JGÓ
- 1
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 270
Gestir í gær: 88
Samtals flettingar: 974567
Samtals gestir: 255878
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:01:24
