15.08.2010 18:24
Járnkarlinn í Kaupmannahöfn.
Í dag sunnudaginn 15. ágúst tóku 17 íslendingar þátt í Járnkarli í Kaupmannahöfn. Aldrei hafa fleiri Íslendingar tekið þátt í slíkri keppni. Keppnin samanstendur af 3,8km sundi / 180km hjóli / 42,2km hlaupi. Hópurinn er búinn að æfa vel og því allt útlit fyrir góðan árangur.
Athygli skal vakin á því að Hálfdán Freyr Örnólfsson/Dáni Fáskrúðsfirðingur með meiru tók þátt í þessari keppni og stóð sig frábærlega. Við óskum Dána innilegar til hamingju með árangurinn. Dáni býr í Keflavík í dag. Hann segist vera búin að stefna að þessari keppni í 6 mánuði og hafi æfingar verið strangar og það sé notalega og ljúf tifinning að hafa klárað keppnina enda sé ekki annað til í hans orðaforða, get það sem ég ætla mér. 12:15:35 frábær tími.
Hér er Dáni að koma í mark í Fáskrúðsfjarðarhlaupinu á Frönskum dögum.
Skrifað af JKH
Flettingar í dag: 81
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 263
Gestir í gær: 86
Samtals flettingar: 943441
Samtals gestir: 247637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 10:57:32
